Fréttir
4. nóvember 2009
Ríkislögreglustjórinn gerir samning við Outcome
Ríkislögreglustjórinn og Outcome hugbúnaður hafa undirritað samning um leigu á Outcome kannanakerfinu. Til að byrja með hyggst embættið nýta sér kerfið til kannanagerðar á meðal starfsmanna embættisins.
Hjá embætti Ríkislögreglustjóra starfar vel menntað fólk með aðferðafræðilegan grunn. Í ljósi þess var ákveðið að leigja kerfi til þess að framkvæma kannanir innanhúss frekar en að kaupa þá þjónustu utan frá. Þannig uppfyllir embættið kröfur um hagkvæmni og skilvirkni. Starfsmenn embættisins báru kosti Outcome kannanakerfisins við önnur erlend kerfi og varð kerfi Outcome fyrir valinu eftir nánari skoðun. Í framhaldi af gerð samnings fengu nokkrir starfsmenn embættisins ítarlega kennslu á megineiningar kerfisins og hvernig best sé að nýta það í þeirra starfi.
Outcome kannanakerfið sýnir enn og aftur styrk sinn í samanburði við erlend kerfi sem gefur skýrar vísbendingar um hversu framarlega við Íslendingar erum í hugbúnaðarþróun í heiminum.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu"
Páll Vilhjálmsson
Rannís









