Fréttir
27. nóvember 2009
Vefurinn skapar verðmæti - Ráðstefna
Þriðjudaginn 1. desember verður haldin ráðstefna á vegum Útflutningsráðs þar sem fjallað verður um viðskipti á netinu. Þar mun Helga Viðarsdóttir markaðsstjóri 66° Norður segja frá árangri í netviðskiptum. Frá árinu 2005 hefur Outcome hugbúnaður byggt upp vefverslanir með 66° Norður. Um er að ræða metnaðarfulla uppbyggingu vefverslana sem skilað hafa 66° Norður góðum árangri á mörkuðum víða um heim.
Outcome hugbúnaður hefur unnið að uppsetningu og þróun vefverslana allt frá stofnun fyrirtækisins. Fyrirtækið býður verslanir af ýmsum stærðum og gerðum, þannig að viðskiptaþörfum mismunandi viðskiptavina er mætt. Markmiðið er að leggja í hendur viðskiptavina verkfæri sem virka fyrir þá í samkeppninni og geta skilað árangri hvort sem unnið er á innanlands- eða útflutningsmarkaði.
Nánar um ráðstefnu Útflutningsráðs hér.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.









