Fréttir
15. janúar 2010
Rammagerðin opnar vefverslun með Outcome
Nýverið opnaði Rammagerðin nýja vefverslun á léninu www.icelandgiftstore.com. Verslunarkerfið var sett upp af Outcome hugbúnaði, en kerfið var aðlagað að þörfum Rammagerðarinnar sem býður mjög fjölbreytt vöruúrval.
Rammagerðin hefur lengi verið leiðandi verslun í sölu á íslensku handverki, ullarvörum og minjagripum. Með uppsetningu á öflugri vefverslun á erlendu tungumáli er stefnt að aukinni sölu til erlendra aðila. Með uppsetningu verslunar í þessum gæðaflokki aukast líkur á velgengni til muna á stærri mörkuðum. Starfsmenn Outcome óska Rammagerðinni til hamingju með þennan stóra áfanga í langri og farsælli sögu fyrirtækisins.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu"
Páll Vilhjálmsson
Rannís









