Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. mars 2010

N1 leigir Outcome Kannanakerfið

N1 hefur gert samning við Outcome hugbúnað um afnot af Outcome kannanakerfinu. Bryddað verður upp á þeirri nýjung í þessu samstarfi að tengja birtingu niðurstaðna við stjórnendahugbúnaðinn TARGIT og auðvelda þannig stjórnendum notkun niðurstaðna við ákvarðanatöku.

Sérstakt kannanaútlit var hannað í anda vefsíðu N1 sem verður grunnur að könnunum fyrirtækisins. N1 er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins með um 800 starfsmenn og eitt fyrsta verk N1 með kannanakerfinu er að gera árlega starfsmannakönnun. Í tengslum við þetta fengu tæknimenn og starfsmenn á mannauðsviði kennslu á kerfið sem var sérsniðin að þessu verkefni. Niðurstöður kannana verða svo fluttar rafrænt inn í TARGIT stjórnendalausnina sem N1 tók nýverið í notkun. Þetta er gert til að samræma birtingu gagna innanhúss hjá þeim. Þessi leið sýnir enn og aftur styrk kannanakerfisins en það er m.a. hannað með það fyrir augum að auðvelt sé að flytja niðurstöður yfir í önnur kerfi.

Lesa meira um Outcome kannanakerfið

Könnun í útliti N1


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Greiðvirk og frábær þjónusta"

Elísabet Hjaltadóttir
Actavis Group hf


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini