Fréttir
22. apríl 2010
Umsóknarkerfi vekur lukku
Þann 26.mars s.l. úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra styrkjum til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna. Úthlutaðir styrkirnir voru 55 að þessu sinni til fjölbreyttra verkefna vítt og breitt um landið. Umsóknarferlið var rafrænt og fór fram í gegnum vefsíðuna www.atvinnumalkvenna.is sem byggir á Outcome Vefstjóranum.
Starfmenn Outcome smíðuðu sérstakt umsóknakerfi fyrir þetta verkefni en þetta er þriðja umsóknarlotan sem unnin er með þessum hætti. Að þessu sinni voru 30 milljónir króna til úthlutunar og var sérstakur markhópur að þessu sinni atvinnulausar konur með viðskiptahugmynd. Starfsfólk Outcome óskar styrkþegum til hamingju með úthlutunina og óskar þeim velfarnaðar í sínum verkefnum.
Vefurinn og rafræn eyðublöð byggja á Outcome Vefstjóranum.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu"
Páll Vilhjálmsson
Rannís









