Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

17. maí 2010

Heilsa opnar vef hjá Outcome

Nýverið var nýr vefur Heilsu opnaður. Vefurinn var settur upp af Outcome og byggður á Vefstjóranum sem er aðalvefumsjónarkerfi fyrirtækisins. Vefurinn er mikil upplýsingaveita um heilsuvörur og heilsufæði. Upplýsingakerfi Heilsu er beintengt vefnum þannig að fram í hann eru lesnar vöruupplýsingar með vélrænum hætti úr kerfum Heilsu.

Á hverri nóttu eru miklar upplýsingar lesnar fram í vefinn úr kerfum Heilsu og starfsfólk fyrirtækisins þarf aðeins að viðhalda þeim í sínum vörugrunnum og kerfið sér svo um framlestur upplýsinganna. Ekki er eingöngu um hreinar vöruupplýsingar að ræða heldur einnig margvíslegan fróðleik um vítamín, bætiefni og fæði að ræða. Þetta gerir vefinn að mikilli upplýsingauppsprettu fyrir alla þá sem velta heilsufæði og bætiefnum fyrir sér. Flottur vefur hjá framsæknu fyrirtæki.  

Heilsa ehf er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á lífrænum matvörum, jurtum, fæðubótarefnum, vistvænum snyrtivörum og hreingerningarvörum. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í tæp 40 ár. Heilsa flytur inn vörur frá flestum Evrópulöndum, Skandinavíu, Bandaríkjunum og Kanada. Fyirirtækið leggur mikið upp úr gæðum og er nánast öll matvara þeirra lífrænt vottuð og vítamínin eru ýmist lífræn eða náttúruleg, án auk- og rotvarnarefna. Vörurnar frá Heilsu fást í öllum heilsubúðum, apótekum og matvöruverslunum á Íslandi.

Heilsa - frétt

www.heilsa.is

 


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Fagmennska fyrsta flokks!"

Árni Steinar Stefánsson
Eures


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi