Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

11. maí 2010

Kaffitár gerir starfsmannakönnun með Outcome

Outcome lauk nýverið við framkvæmd viðhorfskönnunar á meðal starfsmanna Kaffitárs. Um var að ræða tölvupóstkönnun sem send var til allra starfsmanna við brennslu og þjónustu. Slíkar kannanir hjálpa vinnuveitendum við að skilja viðhorf og liðan starfsmanna á hverjum tíma og þar með tækifæri til að skapa vinnuumhverfi sem skilar ánægju og árangri.  Auk þess getur þetta leitt til þess að hugmyndir starfsmanna fái brautargengi.

Í þetta sinn leitaði Outcome sér liðsinnis hjá ráðgjafafyrirtækinu Attentus - mannauður og ráðgjöf við val á spurningum ásamt úrvinnslu og kynningu á niðurstöðum. Nafnleysið í Outcome kannanakerfinu gerir það að verkum að starfsmenn leyfa sér frjálsari og óheftari tjáningu skoðana við yfirmenn. Starfsmannakannanir hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þar sem stjórnendur geta gripið í taumana strax sé þess þörf en einnig ræktað það sem vel er gert. Kannanir sem þessa gefa líka starfsmönnum til kynna að stjórnendur leiti eftir þeirra ráðum og þetta eitt og sér getur bætt vinnuandann.

Outcome kannanakerfið er sérstaklega hentugt til þess að afla þessar upplýsinga, ýmist með tölvupóstkönnunum, staðbundnum könnunum (með Outcome kiosk standinum) eða með símakönnunum þar sem hægt er að nýta Outcome kannanakerfið við söfnun svara. Outcome hefur einnig hannað sérstaka lausn við mat á stjórnendum fyrirtækja eftir aðferðafræði 360 gráðu mats.

 


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"

Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi