Fréttir
17. júní 2010
Landflutningar-Samskip vinna þjónustukönnun með Outcome
Fyrir skömmu unnu Landflutningar-Samskip umfangsmikla þjónustukönnun á meðal viðskiptavina. Könnunin sem var rafræn var unnin í samstarfi við Outcome hugbúnað en þar var safnað upplýsingum um stöðu einstakra þjónstuþátta.
Landflutningar-Samskip bjóða viðskiptavinum sínum upp á heildarlausnir í flutningum með þéttriðnu þjónustuneti um allt land. Þjónustukönnun sem þessi safnar viðhorfum viðskiptavina um hvað vel er gert og ekki síður um hvað ber að bæta.
Könnunin var framkvæmd með Outcome Kannankerfinu. Unnið var með spurningalista sem búin var til af starfsmönnum Landflutninga-Samskipa en settur upp í rafrænt form af starfsmönnum Outcome með litilsháttar aðlögun að kerfinu. Könnun sem þessi er einföld í framkvæmd en getur gefið ómældar upplýsingar um stöðu þjónustu og þar með grunnur að uppbyggingu viðskiptatryggðar og sterkari stöðu í samkeppni.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um kannanir sem þessar hjá einstaka starfsmönnum Outcome eða með því að senda inn fyrirspurn í gegnum vefinn hér.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Leit









