Fréttir
9. ágúst 2010
Strandmenning og seglskip á Húsavík
Í upphafi sumars opnaði ferðaþjónustufyrirtækið Norðursigling nýjan vef. Fyrirtækið, sem þekkt er fyrir hvalaskoðunarferðir frá Húsavík, hefur jafnt og þétt vaxið og starfsemi þess aukist á sviði ferðaþjónustu. Vefurinn sem nú hefur verið opnaður er brotinn upp í 5 megin vefi sem hver og einn kynnir tiltekinn þátt í starfsemi fyrirtækisins sem snýr nú að siglingum, veitinga- og ferðamannaþjónustu. Vefirnir eru almennt á ensku, en þó eru tveir þeirra einnig á íslensku. Vefirnir eru allir ríkir að innihaldi og fagmannlega myndskreyttir.
Vefirnir eru settir upp í nýjustu útgáfu Vefstjórans en hönnunar- og hugmyndarvinna var í höndum starfsmanna Norðursiglingar. Eldri vefir fyrirtækisins keyrðu einnig á Outcome Vefstjóranum og var því ekki aðeins um að ræða breytingar á útliti og framsetningu efnis, heldur einnig uppfærslu á kerfum.
Arngrímur Arnarson útlitshannaði vefina, en í þeirri vinnu varð til sterk tilvísun í áherslu fyrirtækisins á eikarbáta og strandmenningu fyrri tíma.

Skoða má vefina á eftirtöldum vefslóðum: www.nordursigling.is , www.gamlibaukur.is , www.skuld.is , www.schooners.is, http://www.whalewatchinghusavik.is.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga









