Fréttir
27. október 2010
Rannís er öflugasti stuðningsaðili nýsköpunar og vísindastarfs á Íslandi
Nú í október opnaði Rannís nýjan og endurbættan vef. Markmið með nýja vefnum er að bæta upplýsingagjöf og gera hið mikla starf Rannís sýnilegra. Vefurinn dregur fram mörg þeirra góðu verkefna sem stofnunin kemur að með styrkjum og tengslum við vísindasamfélagið. Nú sem aldrei fyrr skiptir framlag Rannís máli en þeirra aðild að rannsóknum og nýsköpunarfyrirtækjum hefur skipt sköpum. Vísindin efla alla dáð og hagsæld okkar í framtíðinni byggir á því að hér takist vel til.
Vefurinn er byggður á Outcome vefstjóranum og útlitshönnun hans var í höndum Orra Guðjónssonar. Öll almenn umsýsla er á könnu starfsfólks Rannís. Þetta er þriðji vefur Rannís sem Outcome hugbúnaður setur upp á nokkurra ára tímabili en eðli málsins samkvæmt þróast vefir í takt við áherslur í starfi og tækniframvindu á hverjum tíma.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys"
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands
Leit









