Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

8. nóvember 2010

66° norður sækja fram á þýskumælandi markaðssvæði

Fyrir skömmu opnaði 66° norður nýja vefverslun sem sérstaklega var sett upp til að þjóna þýskumælandi mörkuðum. Þegar eru starfræktar nokkrar vefverslanir með vörur fyrirtækisins, en hér er komið betur til móts við tiltekið markaðssvæði sem er sannarlega mikilvægt. Verslunin er öll á þýsku og tekur mið af þeim mörkuðum sem henni er beint að.

Outcome hugbúnaður hefur um árabil verið samstarfsaðili 66° norður á sviði upplýsingatækni og vefviðskipta og það er með ánægju og stolti sem við óskum 66° fyrirtækinu til hamingju með nýja verslun.

Vægi vefviðskipta í heiminum hefur aukist ár frá ári og vöxtur á því sviði hefur verið langt umfram annan vöxt í smásölu á heimsvísu. Mörg framsækin fyrirtæki hafa séð tækifæri til vaxtar í gegnum vefinn og fullvíst er að þeim mun fjölga jafnt og þétt sem nýta netið ekki eingöngu til samskipta og upplýsingagjafar heldur einnig viðskipta af ýmsum toga.

66° norður - þýsk vefverslun


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini