Fréttir
30. nóvember 2010
Hvala- og náttúruskoðun á Húsavík
Fyrr í haust opnaði hvala- og náttúruskoðunarfyrirtækið Gentle Giants nýjan vef. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað síðustu ár og býður nú meira úrval ferða á NA-landi. Sem fyrr er kjarni starfseminnar tengdur hvalaskoðun en einnig er boðið upp á veiði, fuglaskoðun og ýmsar aðrar áhugaverðar ferðir.
Vefurinn leysir eldri vef af hólmi og samhliða opnun hans hafa umsjónaraðilar hans unnið töluvert starf í vefmarkaðssetningu og vægi hans í sölu- og markaðsstarfi fyrirtækisins hefur aukist. Hönnuður vefsins er Hallgrímur Egilsson og umsýsla og skipulag efnis er í höndum starfsfólks Hvalaferða / Gentle Giants. Vefurinn er byggður á Outcome 5.0 vefumsjónarkerfinu og eiginleikar þess nýtast í birtingu myndbanda, auglýsinga ofl.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf









