Fréttir
3. desember 2010
Vegur Ferðafélags Íslands vex jafnt og þétt
Nýverið opnaði Ferðafélag Íslands nýjan vef sem leysir eldri vef af hólmi. Á síðustu árum hefur vegur félagsins vaxið jafnt og þétt. Fjöldi félagsmanna vex og yngri kynslóðin hefur aukið þátttöku sína í starfi þessa góða félags sem býður Íslendingum upp á fjöldann allan af ferðum um landið.
Nýr vefur félagsins er í sífelldri mótun og nú hefur myndbirting úr ferðum verið bætt og dagskrá á hverjum tíma fær meira svigrúm á forsíðu vefsins. Vefurinn hefur almennt verið einfaldaður og ýmsar upplýsingar gerðar aðgengilegri á sama tíma og dregnar eru fram ljósmyndir úr starfi félagsins á hverjum tíma.
Vefurinn er hannaður af Orra Guðjónssyni og uppsetning hans var í höndum starfsfólks Outcome hugbúnaðar. Outcome 5.0 vefumsjónarkerfið er nýtt sem grunnur vefsins og umsjón hans er í höndum starfsfólks á skrifstofu félagsins.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus
Leit









