Fréttir
13. desember 2010
Vinnumálastofnun opnar nýjan vef og nýjar samskiptagáttir
Vinnumálastofnun hefur nú opnað nýjan vef. Unnið hefur verið að uppbyggingu hans frá því í vor og allt skipulag hans var tekið til skoðunar. Nú hefur nýr og aðgengilegri vefur verið opnaður. Samhliða því voru "mínar síður" atvinnuleitenda endurbættar og þjónustuleiðum fjölgað.
Við skoðun vefsins má sjá að framsetning upplýsinga um laus störf hefur verið bætt og stuðningur við atvinnuleitendur hefur verið bættur með ýmsum hætti.
Í vefnum er nú nýjasta leitarvél Outcome hugbúnaðar. Hún vinnur sig í gegnum öll algeng skráarsnið s.s. excel, powerpoint, word og pdf. Hún tekur tillit til beygingarendinga í íslensku máli og sé leitað eftir tilteknu orði skilar hún því ekki bara með einni tiltekinni beygingarendingu, heldur öllum endingum sem skráðar eru beygingarlýsingar íslensks nútímamáls hjá Stofnun Árna Magnússonar.
Skipan vefsins var unnin af vinnuhópi hjá Vinnumálastofnun sem leiddur var af Hildi Fjólu Svansdóttur upplýsingaarkítekt. Vefurinn keyrir á Outcome vefstjóra 5.0 (sem er jafnframt nýjasta útgáfa vefumsjónarkerfisins). Útlitshönnun var í höndum Orra Guðjónssonar og uppsetning og frágangur var í höndum starfsmanna Outcome hugbúnaðar.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga









