Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31. janúar 2011

Stéttarfélag í almannaþjónustu - SFR

Fyrir skömmu opnaði SFR alveg nýjan vef sem vakið hefur athygli. Þetta er þriðji vefurinn sem SFR vinnur með Outcome en ávallt hefur verið lögð áhersla á að nýta möguleika rafrænnar tækni í þeirra starfi. Þannig er þessi vefur ekki bara almennur upplýsingavefur heldur einnig verkfæri sem hjálpar í orlofsbókunum, námskeiðsskráningum, samskiptum við trúnaðarmenn osfrv. Við hönnun vefsins var sérstaklega horft til bætts aðgengis að upplýsingum, fjölgun möguleika til kynninga á starfseminni og á viðfangsefnum líðandi stundar.

Vefurinn er byggður á nýjustu útgáfu Vefstjórans og þar skapast meiri sveigjanleiki í efnisframsetningu en áður og auðveldara er að vinna með annars flókna vefi. Vefinn hannaði Orri Guðjónsson vefhönnuður og uppsetning hans var í höndum Jóns Ívars Hermannssonar tölvunarfræðings hjá Outcome hugbúnaði.

Stéttarfélag í almannaþjónustu - SFR

www.sfr.is


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini