Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

5. febrúar 2011

Vefur Norðursiglingar sigrar

Vefur Norðursiglingar, www.northsailing.is, sigraði í sínum flokki og var metinn besti sölu- og kynningarvefur ársins 2010 hjá fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn.

Þetta var niðurstaða dómnefndar Svef - Samtaka vefiðnaðarins sem kynnt var í gær, þann 4. febrúar á úrslitakvöldi íslensku vefverðlaunanna. Umsögn dómnefndarinnar hljóðaði svo:

"Besta sölu og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn - northsailing.is
Á krepputímum er mikilvægt að vera með öfluga sölustarfsemi og vinna sér inn hollustu viðskiptavina. Þessi vefsíða er gott dæmi um þar sem þetta markmið er í hávegum haft. Í ofanálag er hann aðgengilegur og skýr. Með einstaklega vel heppnað útlit og nóg af auka upplýsingum, myndskeiðum og myndum. Það sem gerir hann enn aðdáunarverðari að hann er samvinnuverkefni nokkurra aðila sem eiga annars í harðri samkeppni."

Vefurinn var hannaður af Arngrími Arnarsyni í nánu samráði við starfsfólk Norðursiglingar og er vefurinn byggður á Outcome Vefstjóranum, vefumsjónarkerfi Outcome hugbúnaðar. Það var Jón Ívar Hermannsson tölvunarfræðingur sem á veg og vanda af uppsetningu og frágangi vefsins af okkar hálfu, en sú vinna var unnin í nánu samstarfi við Arngrím. Við óskum Norðursiglingu til hamingju með þennan heiður.

 

Norðursigling


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Við erum aðilar að

Samtök atvinnulífsinsSamtök iðnaðarinsSamtök vefiðnaðarinsEsomar

Umsagnir

„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"

Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit