Fréttir
3. október 2011
Svanni eflir atvinnulíf á Íslandi
Svanni - Lánatryggingasjóður kvenna opnaði fyrir skömmu vefinn www.svanni.is en vefurinn inniheldur hvortveggja margvíslegar upplýsingar um stuðningsumhverfi við frumkvöðlastarf og einnig er á vefnum að finna rafrænt umsóknarform þar sem hægt er að sækja um lánatryggingu til sjóðsins. Hér er ekki eingöngu um rafrænt umsóknarform að ræða heldur heildarúrvinnsluferil umsókna þannig að umsagnar- og matsaðilar geta unnið sína vinnu í gegnum vefinn með einföldum hætti og skilað sínu mati þar.
Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum.Verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja eignir sínar en karlar og hefur það oft staðið verkefnum kvenna fyrir þrifum.
Sjóðurinn, sem hefur hlotið nafnið Svanni, er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er verkefnið til fjögurra ára og lýkur þann 31.desember 2014.
Útlitshönnun var í höndum Orra Svavars Guðjónssonar. Uppsetning vefs og sérforritun var í höndum starfsmanna Outcome hugbúnaðar.

Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Umsagnir
„Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu"
Páll Vilhjálmsson
Rannís









