Beint á leiðarkerfi vefsins

Þjónusta

Þjónusta við viðskiptavini er grundvöllur allrar starfsemi Outcome hugbúnaðar. Í samskiptum við viðskiptavini er horft til langtíma samstarfs og samvinnu enda markmiðið að árangur náist í rekstri hugbúnaðar og lausna sem Outcome leggur til. 

Þjónusta Outcome er sérsniðin að þínum þörfum.

Þjónusta okkar tekur á flestu því sem snýr að uppbyggingu og hýsingu vefsetra, rafrænni rannsóknagerð og beitingu upplýsingatækni í nytsömum tilgangi.

Starfsfólk Outcome leggur metnað sinn í að styðja vel við viðskiptavini, þannig að hugbúnaður þeirra nýtist til fullnustu og árangur þeirra verði sem mestur.

Vefsetrið okkar býður þér þægilegar og skilvirkar samskiptaleiðir hvort sem þig vantar upplýsingar, tilboð, aðstoð eða ert með ábendingu.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit