Beint á leiðarkerfi vefsins

Ráðgjöf

Internetið hefur á síðustu árum breytt mjög mörgu í því hvernig fólk á Vesturlöndum hagar samskiptum sínum. Hvort sem um er að ræða samskipti, viðskipti eða almenna leit að upplýsingum. Aðferðir og hugsun bæði almennings og fyrirtækja hafa gjörbreyst og við þessu þurfa fyrirtæki og félagasamtök að bregðast. Jákvæð og markviss nýting upplýsingatækninnar leiðir til bættra samskipta og viðskipta í heiminum og þeir sem nýta sér möguleikana sem bjóðast standa betur að vígi í samskiptum og viðskiptum.

Ekki eru mörg ár síðan fáir þekktu til Internetsins, hvað þá að þeir þekktu til nýtingar þess. Á ógnarhraða hefur útbreiðsla þess náð til flestra Íslendinga og haft áhrif á hvernig þeir hegða sínu lífi. Þegar að fjárfestingum á sviði upplýsingatækni kemur skiptir miklu að skilningur á þeim möguleikum og tækifærum sem bjóðast sé nægur. Ella er hætta á að farið sé í óþarfa vinnu og fjárfestingar sem aldrei verða arðsamar né skili þeim árangri sem stefnt var á.

Fyrirtæki og samtök sem hyggjast nýta möguleika upplýsingatækninnar til sóknar eða hagræðingar ættu því hiklaust að velta upp möguleikum á hjálp við mótun og mat á verkefnum sem vinna skal.

Starfsmenn Outcome hafa margra ára reynslu af mótun og skipulagningu upplýsingatækniverkefna. Hjá fyrirtækinu starfa vel menntaðir tölvunarfræðingar, viðskiptafræðingar og hönnuðir sem geta veitt ráðgjöf og leiðsögn ásamt verkefnastýringu í bæði einföldum og flóknum verkefnum.

Meðal ráðgjafar sem hægt er að leita til Outcome hugbúnaðar með er: 

  • Verkefnastýring 
  • Verkefnagreiningar
  • Mat á kostum
  • Mótun verkefna
  • Áætlanagerð
  • Kostnaðarmat

Allir viðskiptavinir Outcome hugbúnaðar geta fengið stuðning á þessum sviðum en einnig hafa starfsmenn fyrirtækisins komið að utanaðkomandi verkefnum sem ráðgjafar og greinendur, enda búum við yfir margra ára reynslu á þessu sviði.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi