Rafrænar kannanir
Með aukinni tæknivæðingu viðskiptalífsins og heimila í landinu verður sífellt auðveldara að bjóða upp á einfaldari og tæknilegri samskiptalausnir. Rafrænar kannanir hafa marga kosti framyfir önnur form kannanna s.s.
Gagnvirk samskipti
Rafrænar kannanir eru hluti af gagnvirkum samskiptum sem nýtt eru í auknum mæli á Internetinu. Upplýsingatæknin snýst ekki eingöngu um upplýsingagjöf heldur frekar margvísleg samskipti og dæmi um það eru kannanir, blogg og margvísleg samskipti og viðskipti sem fólk á í á netinu.
Minni kostnaður
Rafrænar kannanir hafa bylt möguleikum til að kanna afstöðu minni og stærri hópa. Upplýsingatæknin hefur dregið stórkostlega úr þeirri vinnu sem fram þarf að fara við framkvæmd kannana og einnig er auðveldara fyrir þá sem þátt taka að ljúka sínum málum. Tæknin dregur úr kostnaði við framkvæmd rafrænna kannana og viðfangsefni sem ekki þótti ráðlegt að skoða áður vegna mikils kostnaðar eru nú alveg skoðunartæk.
Aukið lýðræði
Hið jákvæða er að nú er auðveldara en áður að fá fram vilja og afstöðu hópa en áður. Í rekstri er t.d. miklu auðveldara með rafrænum könnunum að leita eftir skoðunum markhópa sem gætu t.d. verið viðskiptavinir eða starfsmenn. Í félögum ýmiskonar er hægt að auka lýðræði með því að bera mikilvæg atriði undir félagsmenn og beita þá rafrænum könnunum.
Loks er hægt að byggja upp margvíslegar vísitölur rafrænum könnunum, hvort sem það eru gæða- eða þjónustuvísitölur en þar geta menn borið saman frammistöðu sína á mismunandi tímabilum og fá þá fram með nokkuð skýrum hætti upplýsingar um veikleika og styrkleika og almennt ástand málaflokka.
Hófleg notkun
Þó rafrænar kannanir opni stórkostlega möguleika er rétt að slá þann varnagla að ofnotkun dregur úr vilja fólks til að svara. Því er mikilvægt að nálgast markhópa, úrtök eða þýði með virðingu þannig að kannanaálag verði ekki of mikið. Vönduð framsetning, skýrar spurningar og góð textaframsetning er allt atriði sem huga þarf að við gerð kannana.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Vörur
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga




