Aðrar kannanir
Ef áhugi er á leysa sértæk mál eða taka upp mælingar sem kalla á sérvirkni eru starfsmenn Outcome hugbúnaðar ætíð tilbúnir til að skoða þau mál með viðskiptavinum. Þær sérlausnir sem fyrirtækið býður í dag eru flestar komnar til vegna metnaðrafullra hugmynda sem eiga rætur í framsæknum íslenskum fyrirtækjum.
Samhæft árangursmat - Balanced scorecard mælingar
Kannanakerfið hefur verið nýtt til að mæla ákveðna árangursþætti í samhæfðu árangursmati (Balanced Scorecard) mælingum. Með spurningalistum er hægt að fá fram afstöðu bæði viðskiptavina og starfsfólks. Upplýsingum sem umbreytt er í mælistærðir sem hægt er að flytja inn í stjórnborðið og gefur þá vísbendingar um þróun einstakra vídda árangursmatsins.
Starfsmenn Outcome gefa upp nánari upplýsingar um hvernig unnt er að nýta Outcome kannana kerfið við mælingar í samhæfðu árangursmati.
360 gráðu mat
Þetta er þekkt frammistöðumatsaðferð sem m.a. General Electric hefur nýtt við mat á frammistöðu og hæfni sinna stjórnenda. Nokkur íslensk fyrirtæki hafa nýtt sér þetta stjórnendamat. Um er að ræða margfaldar kannanir þar sem stjórnendur fara í gegnum sjálfsmat en fá einnig mat undir- og yfirmanna á raunframmistöðu sinni. Sérstök úrvinnsluaðferð er nýtt til að setja gögnin fram. Aðferðin skilar árangri sem felst í því að hægt er að vinna með bæði sterkar og veikar hliðar þeirra sem fara í gegnum matið. Endurteknar mælingar leiða svo í ljós hvort árangur næst.
Nánari upplýsingar um 360 gráðu matið getu þú fengið hér ( 115 kb, PDF skjal ).Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.




