Einfaldar leiðir til þess að auka svarhlutfall
1. Hafðu einungis spurningar sem skipta máli
Könnun á að innihalda einungis spurningar og svarmöguleika sem skipta markhópinn þinn máli. Millistjórnendur hafa til að mynda ekki áhuga á því að láta selja sér hluti, en vilja yfirleitt gefa 3 mínútur til þess að svara könnun og hafa þar með áhrif á þjónustu sem þeim er veitt í framtíðinni.
2. Skilgreining markhópa
Íhugaðu mjög vel hverjir það eru sem eiga að svara könnuninni þinni. Mismunandi möguleikar standa til boða til þess að finna mögulega svarhópa. Til viðbótar við útsendingar á tölvupóstlista sem eru í þinni eign, er oft einnig mögulegt að kaupa lista, notast við netsveit sem þriðji aðili rekur eða senda á lista á vegum félaga og klúbba.
3. Beiðni um þátttöku hnitmiðuð og tær
Í tölvupóstkönnunum og í popup-gluggum borgar sig að hafa beiðni um þátttöku sem stysta. Hér eru nokkrir punktar sem þurfa að koma fram:
- Hver þú ert
- Hvert er markmiðið með könnuninni
- Hvað græða þátttakendur á því að svara
- Hvað tekur það langan tíma að svara
- Persónuverndaryfirlýsing
-
Inngangstexti við könnunin sjálfa ætti svo að vera umfangsmeiri.
4. Ítrekun á réttum tíma
Þegar þú sérð að enginn hefur svarað tölvupóstkönnuninni þinni í hálfan eða heilan dag og svarhlutfallið er ekki nægilegt að þínu mati, þá borgar sig að senda út ítrekun. Langbest er að senda ítrekun á miðjum degi, í það minnsta ekki í lok dagsins. Það á að hámarki að senda tvær ítrekanir á könnun, en oft dugir ein.
5. Umgjörð könnunar
Hafðu umgjörð könnunarinnar snyrtilega, aðgengilega og faglega. Helst í stíl við annað markaðsefni eins og t.d. vefsetur fyrirtækisins. Stærð letursins í könnun og stíl á spurningum og svarmöguleikum skiptir einnig máli. Allt efni þarf að vera skýrt og læsilegt.
6. Verðlaun
Ef það eru verðlaun í boði skal taka það fram strax í beiðni um þátttöku. Dæmi um verðlaun sem hafa virkað mjög vel til þess að auka svarhlutfallið eru flug til útlanda, miðar (bíó, tónleikar, sýningar, leikhús), út að borða og síðan hvað sem fyrirtækið sem stendur fyrir könnunina getur boðið upp á.
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Vörur
Umsagnir
„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga




