Umsagnir viðskiptavina
Fagmennska fyrsta flokks!
Ég þakka Outcome fyrir ómetanlega aðstoð við gerð síðunnar. Þið fáið algjör toppmeðmæli frá okkur og ekki hægt að kvarta yfir einum einasta hlut.
Fagmennskan fyrsta flokks!
Árni Steinar Stefánsson
Ráðgjafi hjá Eures
Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur
Við hjá Teris höfum notað Outcome kannanakerfið við gerð mánaðarlegra þjónustukannana. Niðurstöðurnar höfum við notað markvisst til að rýna og bæta þá þjónustu sem við veitum viðskiptavinum okkar með góðum árangri. Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun og uppfyllir þær öryggis og gæða kröfur sem við störfum eftir og leggjum mikið uppúr sem vottað fyrirtæki.
Hrannar Már Hallkelsson
Framkvæmdastjóri, Viðskiptaþjónustu og markaðsmála hjá Teris.
Greiðvirk og frábær þjónusta
Actavis hefur notað Outcome vefkannanakerfið í nokkur ár. Við höfum notað Outcome við margvíslegar viðhorfskannanir meðal starfsfólks, 360° stjórnendamat og einnig hafa nokkur dótturfélög okkar erlendis notað kerfið við kannanir meðal viðskiptavina sinna. Kerfið er auðvelt og hagkvæmt í notkun og framsetning niðurstaðna skýr og greinileg. Í upphafi hvers árs gerum við viðamikla könnun meðal starfsmanna okkar um allan heim, á mörgum tungumálum. Könnunin er nokkuð umfangsmikil og við þurft töluverða aðstoð við framkvæmd hennar. Þar höfum við notið greiðvikni og frábærrar þjónustu starfsmanna Outcome.
Elísabet Hjaltadóttir
Sviðstjóri á Samskiptasviði Actavis Group hf.
Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur á undanförnum árum nýtt sér þjónustu og vörur Outcome hugbúnaðar bæði í vefumsjón og gerð rafrænna kannana. Outcome hefur meðal annars annast framkvæmd á Skólavog sambandsins sem er umsvifamikil árleg könnun sem er framkvæmd rafrænt hjá á þriðja tug grunnskóla. Þar er kannað viðhorf nemenda, starfsmanna og foreldra til starfsemi skólanna. Outcome hefur síðan skilað skýrslu um verkefnið bæði til viðkomandi skóla og verkefnisstjórnar Skólavogarinnar. Samskipti okkar við starfsmenn Outcome hafa verið með ágætum vegna þessa verkefnis, framkvæmd þess gengið vel og tímaáætlanir staðist. Þeir hafa einnig verið vakandi yfir því að læra af reynslu fyrri ára og komið með gagnlegar ábendingar um það sem betur megi fara við útfærslu og tilhögun verkefnisins"
Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu
Reynslan af viðskiptum við Outcome hugbúnað ehf. er að þeir standa við gerða samninga, eru sanngjarnir í verði og veita röska og trausta þjónustu.
Páll Vilhjálmsson
Rannís
Outcome stenst okkar kröfur um nákvæmni, skipulag, áreiðanleika og vandvirkni
Í þeim verkefnum sem Outcome ehf hefur unnið fyrir rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins hefur reynt á vinnubrögð sem krefjast nákvæmni, skipulag, áreiðanleika og vandvirkni. Það er ánægjulegt að segja frá því að Outcome ehf stóðst allar þær kröfur. Þjónustan hefur einnig verið lipur og úrlausn verkefna gengið hratt og vel fyrir sig. Outcome hugbúnaður skilar niðurstöðum kannanna á aðgengilegu formi til áframhaldandi vinnslu.
Ásta Snorradóttir
Vinnueftirlitinu
Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði
AP almannatengsl hafa mælanlegan árangur að leiðarljósi. Ein af mörgum leiðum til að mæla árangur er að gera viðhorfskannanir og þá leitum við gjarnan til Outcome hugbúnaðar, þar sem við fáum undantekningarlaust ljómandi góða og lipra þjónustu á sanngjörnu verði.
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
Ráðgjafi og verkefnastjóri hjá AP almannatengslum
Við getum hiklaust mælt með Outcome
Vefsvæði 66˚Norður er mikilvægur og sívaxandi þáttur í markaðsstarfi okkar. Samstarfið við Outcome hefur verið einkar gott og farsælt, þjónustan persónuleg og hraðvirk. Við getum því hiklaust mælt með Outcome.
Felix Gylfason
verkefnastjóri vefverslunar 66°Norður
Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys
In 2008 and 2009 Outcome has helped us with several online surveys for our customers and employees. The collegues of Outcome helped us not only technically but also adviced us on the type of question- and answerpossibilities. Their surveyreports are excellent, extensive and have been very usefull to us. Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys.
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands
Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar
"IMARK hefur nú síðarliðin ár nýtt sér Outcome kannanakerfið við dómgæslu Lúðursins - Íslensku auglýsingaverðlaunanna. Kerfið hefur nýst okkur mjög vel og sparað ómælda vinnu og tíma við framkvæmd dómfærslunnar og úrvinnslu niðurstaðna. Starfsmenn Outcome hafa unnið náið með okkur að þessu verkefni og eru verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar."
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK
Meðal viðskiptavina
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Vörur
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK





