Umsagnir viðskiptavina
Lipurt og hjálpsamt starfsfólk
Outcome vefkannanakerfið var tekið í notkun á Landspítala árið 2007. Settar hafa verið upp stærri sem smærri kannanir, þar sem ýmist er um að ræða rannsóknir, gæða-, viðhorfs- eða ánægjukannanir. Notkunin hefur farið vaxandi ár frá ári og ríkir ánægja með kerfið og öll samskipti sem við höfum átt við starfsfólk Outcome.
Reynsla okkar er að Outcome bjóði upp á eftirfarandi:
- Einfalda leið til að setja upp kannanir á skýran og notendavænan hátt
- Þægilega leið til þess að senda út kannanir, fylgjast með svörun og senda ítrekanir eftir þörfum
- Góða úrvinnslumöguleika - sem ekki eru fullkannaðir
- Mikla möguleika fyrir breiðan hóp notenda og svarenda varðandi útsendingar, spurningagerðir og úrvinnslu
- Öryggi er varðar persónuvernd og nafnleynd
- Lipurt og hjálpsamt starfsfólk sem leggur sig fram við að leysa úr vandamálum og koma með tillögur til hjálpar
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri
Kennslu- og fræðasviði
Landspítali Fossvogi
Við gefum þeim okkar bestu meðmæli
„Við hjá Attentus höfum átt í samskiptum við starfsmenn Outcome í nokkur ár. Meginástæða þess að við leitum sífellt til þeirra með viðhorfskannanir, þjónustukannanir og stjórnendamat er að þeir eru sveigjanlegir, fljótir að bregðast við og fagmennska er höfð í fyrirrúmi. Við gefum þeim okkar bestu meðmæli.″
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus
Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi
„Við hjá Tölvumiðlun höfum skipt við Outcome í nokkur ár við gerð þjónustukannana og starfsmannakannana og nýtt okkur Outcome kannanir. Við getum ekki annað sagt en að sú þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi. Kerfið er einfalt og þægilegt í notkun, niðurstöðurnar skýrar og þægilegar að vinna með. Okkar bestu meðmæli.″
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri
Tölvumiðlun hf
Meðal viðskiptavina
Næstu skref
Hafðu samband
Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Komdu í heimsókn
Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.
Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.
Vörur
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris





