Beint á leiðarkerfi vefsins

Áreiðanleiki

Mikilvægt er að tryggja rekstur vefseturs með góðum þjónustusamningum sem tekur til þátta eins og uppitíma vefþjóna, almennrar kerfisstjórnunar (uppfærslur á búnaði eins og SQL Server, vírusvörnum, afritunarhugbúnaði) og áframhaldandi þróun kerfa.

Outcome hefur lagt metnað í uppbyggingu kerfisþjónustu og hefur sett sér gæðamarkmið í hýsingu. Í húsnæði Outcome er læst tölvuherbergi með sérhæfðum kælikerfum. Daglegur rekstur og umsjón tölvukerfanna er í höndum þjálfaðs kerfisstjóra sem sinnir eftirliti og afritatöku skv. skilgreindum gæðakerfum.  Vefþjónar Outcome hugbúnaðar eru reglulega endurnýjaðir og aðeins er notast við tölvu- og hugbúnað frá þekktum framleiðendum sem staðist hafa gæðaprófanir. 


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit