Beint á leiðarkerfi vefsins

Hönnun

Árangursrík hönnun

Fyrst er að huga að virkni vefsins. Hver eru markmiðin með vefuppsetningunni ? Er verið að setja upp almennan kynningarvef ? Á að beina samskiptum tiltekinna hópa inn á vefinn og er gert ráð fyrir gagnvirkum samskiptum ? Á jafnvel að stofna til viðskipta á netinu ? Þetta eru allt spurningar sem gott er að fara í gegnum áður en eiginleg útlitshönnun fer fram. Á þessum upplýsingum er svo grunnur vefsins byggður og verður vefhönnuði leiðarljós þegar að eiginlegri útlitshönnun kemur.

Smekkleg hönnun

Þegar grunnur vefs hefur verið lagður kemur að útliti hans. Vefhönnun lýtur öðrum reglum en útlitshönnun á pappír. Vefurinn hefur meiri dýpt en pappírsformið og einnig eru tæknilegir kostir og hömlur sem færir vefhönnuðir nýta eða sneiða hjá í sinni vinnu.  Vefhönnunin tekur til litavals, leturgerða og margvíslegrar framsetningar efnis á forsíðu og undirsíðum. Lykillinn að árangri er skilningur hönnuðar á markmiðum verkkaupans og færni hans í að vinna úr tækifærum sem vefurinn býður upp á.

Hér eru nokkur dæmi um vefi sem Outcome hefur sett upp:

Outcome hugbúnaður leggur áherslu á vönduð vinnubrögð þegar að hönnun kemur. Því er mikið lagt upp úr forvinnu áður en að eiginlegri hönnun kemur. Áralöng reynsla af vefmálum hefur kennt okkur að sjaldnast vinna vefhönnuðir eins og því er það stefna Outcome að leita alltaf eftir færum hönnuðum eftir eðli og umfangi verksins hverju sinni. 


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.

Vörur

Umsagnir

„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"

Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini