Verkefni
Í gegnum tíðina hefur Outcome hugbúnaður tekist á við fjölbreytt verkefni í samvinnu við viðskiptavini fyrirtækisins. Verkefnin hafa verið af öllum stærðum og gerðum og viðfangsefnin sem viðskiptavinir fyrirtækisins hafa staðið frammi fyrir hafa verið fjölbreytt.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa verið virkir þátttakendur í mótun verkefna. Þeirra aðkoma byggir á skilningi á íslensku atvinnulífi og samfélagi, tækniþekkingu og getu til að vinna með þessa þætti. Markmiðið er alltaf að útkoman standist væntingar viðskiptavina og ekki síður væntingar viðskiptavina viðskiptavinanna.
Verkefnum fyrirtækisins má skipta í tvo meginflokka, sem eru veflausnir og kannanalausnir.




