Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Ríkisendurskoðun nýtir Outcome kannanakerfið

Á dögunum framkvæmdi Ríkisendurskoðun rafræna könnun á meðal  forstöðumanna ríkisstofnana og Outcome kannankerfið var nýtt við framkvæmdina.

Álag á vinnustað eykst - laun lækka eða standa í stað

Kjarakönnun Bandalag háskólamanna (BHM) var framkvæmd á dögunum annað árið í röð af starfsmönnum Outcome með Outcome kannanakerfinu. Könnuninni var ætlað að afla upplýsinga um kjör háskólamanna á vinnumarkaði og spurt var um atriði sem lúta m.a. að reikniforsendum barna- og vaxtabóta, auk þess sem spurt er um breytta hagi af völdum efnahagsþrenginga.

Landflutningar-Samskip vinna þjónustukönnun með Outcome

Fyrir skömmu unnu Landflutningar-Samskip umfangsmikla þjónustukönnun á meðal viðskiptavina. Könnunin sem var rafræn var unnin í samstarfi við Outcome hugbúnað en þar var safnað upplýsingum um stöðu einstakra þjónstuþátta.

Outcome gerir könnun fyrir Háskólann í Reykjavík

HR-ingum gengur vel að fá vinnu. Þetta kemur fram í Alumni-könnun sem skólinn lét Outcome nýverið gera meðal útskrifaðra HR-inga. Könnunin var send til þeirra sem útskrifast hafa frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 1999, Tækniháskóla Íslands (THÍ), Tækniskóla Íslands (TÍ) og Viðskiptaháskólanum í Reykjavík (VHR). Könnunin var framkvæmd með Outcome kannanakerfinu og gerð í gegnum tölvupóst dagana 21. apríl til 10. maí 2010.

Kannanir fyrir Actavis í 18 löndum

Outcome hugbúnaður hefur síðastliðin ár séð um verkstýringu fyrir samræmda kannanagerð í starfstöðvum Actavis um allan heim. Nú í vor var skrefið tekið lengra og var öll framkvæmd í höndum starfsmanna Outcome. Um er að ræða framkvæmd og umsýslu rafrænna spurningakannana í 24 starfstöðvum Actavis í 18 löndum. Umrædd könnun er starfmannakönnun sem sett var upp á 10 tungumálum.

Rafræn atkvæðagreiðsla um samruna SPRON og Kaupþings

Outcome hugbúnaði var falið það verkefni að sjá um rafræna kosningu sem fram fór fyrir hluthafafund SPRON þar sem hluthöfum gafst kostur á að kjósa um samruna sparisjóðsins og Kaupþings. SPRON auðveldaði þannig þeim hluthöfum sem ekki gátu sótt umræddan fund að nýta atkvæðisrétt sinn.

Könnun meðal aðildarfélaga Samtaka Atvinnulífsins (SA)

Outcome hugbúnaður sá um framkvæmd og úrvinnslu yfirgripsmikillar könnunar fyrir Samtök Atvinnulífsins (SA). Markmið könnunarinnar var að fá raunmynd af stöðu og horfum í íslensku atvinnulífi. Outcome kannanakerfið var notað til þess að senda spurningalista til um 1700 félagsmanna samtakana og vinna úr niðurstöðum könnunarinnar.

Samhæft skólamat með Outcome könnunum

Í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga er nú unnið í annað skiptið að samhæfðu skólamati í 26 grunnskólum um allt land. Með matinu fæst fram afstaða og skoðanir þeirra sem skólastarfið snertir helst. Kannanir eru lagðar fyrir foreldra grunnskólabarna, börnin sjálf og starfsfólk skólanna. Útkoman leiðir í ljós það sem vel er gert og þau atriði sem þarfnast úrbóta.

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit