Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Samhæft skólamat með Outcome könnunum

Í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga er nú unnið í annað skiptið að samhæfðu skólamati í 26 grunnskólum um allt land. Með matinu fæst fram afstaða og skoðanir þeirra sem skólastarfið snertir helst. Kannanir eru lagðar fyrir foreldra grunnskólabarna, börnin sjálf og starfsfólk skólanna. Útkoman leiðir í ljós það sem vel er gert og þau atriði sem þarfnast úrbóta. Styrkur samhæfðs mats er m.a. sá að það gefur skólum, sveitarfélögum og þeim sem móta skólastefnu á hverjum tíma tækifæri til að fá yfirsýn og samanburð sem nær til einstakra skóla og heildarinnar.

Um er að ræða tilraunaverkefni en hér er kominn vísir að mati sem hægt er að byggja á. Matið nýtist einstökum skólum til úrbóta og einnig er hægt að draga fram það sem best er gert á hverju sviði og nýta það víðar.

Það er óskandi að reglulegar mælingar og úrbætur í framhaldi af þeim geti styrkt íslenskt skólakerfi og aukið þar með samkeppnihæfni þjóðarinnar til lengri tíma. Fullyrða má að einn af lykilþáttum árangurs til framtíðar sé falinn í menntun þjóðarinnar.

Skólamat Outcome

www.skolamat.is


Vörur

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini