Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Könnun meðal aðildarfélaga Samtaka Atvinnulífsins (SA)

Outcome hugbúnaður sá um framkvæmd og úrvinnslu yfirgripsmikillar könnunar fyrir Samtök Atvinnulífsins (SA). Markmið könnunarinnar var að fá raunmynd af stöðu og horfum í íslensku atvinnulífi. Outcome kannanakerfið var notað til þess að senda spurningalista til um 1700 félagsmanna samtakana og vinna úr niðurstöðum könnunarinnar.

Um könnunina:

  • Tölvupóstkönnun send til 1699 fyrirtækja innan SA
  • Svarhlutfall 34,84% eða 592 manns
  • Sendar voru tvær ítrekanir til þeirra sem ekki höfðu svarað
  • Könnunin stóð yfir frá 7. júlí til 11 júlí 2008
  • Skýrsla var búin til og send úr Outcome kannanakerfinu
  • Fyrirtækin í könnuninni endurspegluðu sjávarútveg, iðnað, byggingarstarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki.
  • Í þessum atvinnugreinum störfuðu 92.500 manns árið 2007 og námu launagreiðslur til þeirra rúmlega 470 milljörðum króna.

Helstu niðurstöður

  • Flestir svarenda (81%) voru með undir 50 starfsmenn í vinnu.
  • Flestir þeirra (32%)með 5 starfsmenn eða færri.
  • Fimmtán svarenda störfuðu hjá fyrirtæki með yfir 500 starfsmenn í vinnu.
  • Hjá þeim fyrirtækjum í könnuninni sem þegar hafa fjölgað starfsmönnum eða áforma það nemur fjölgunin 4% af starfsmannafjölda en þegar framkvæmd eða áformuð fækkun nemur 6,7%.
  • Nettófækkun starfsmanna á árinu er því 2,7%. Þessi hlutfallstala, 2,7%, svarar til þess að störfum muni fækka um tæplega 2.500 í þessum atvinnugreinum á árinu. Launagreiðslur sem brott falla af þeim sökum nema rúmlega 13 milljörðum króna eða sem nemur 1% af vergri landsframleiðslu.

Outcome kannanakerfið

www.outcome.is/vorur/kannanakerfi/


Vörur

Umsagnir

„Fagmennska fyrsta flokks!"

Árni Steinar Stefánsson
Eures


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið