Kannanir - Verkefni
Rafræn atkvæðagreiðsla um samruna SPRON og Kaupþings
Outcome hugbúnaði var falið það verkefni að sjá um rafræna kosningu sem fram fór fyrir hluthafafund SPRON þar sem hluthöfum gafst kostur á að kjósa um samruna sparisjóðsins og Kaupþings. SPRON auðveldaði þannig þeim hluthöfum sem ekki gátu sótt umræddan fund að nýta atkvæðisrétt sinn.
Samkvæmt lögum nr. 2 um hlutafélög frá 1995 og lög um breytingu á þeim nr. 89 frá 2006 getur félagastjórn ákveðið að hluthafar geti tekið þátt í hluthafafundum rafrænt, þ.m.t. greitt atkvæði, án þess að vera á staðnum. Félögum, sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði, er þó skylt að gefa hluthöfum kost á að greiða atkvæði um mál, sem eru á dagskrá hluthafafundar, bréflega eða rafrænt.
Félagastjórn SPRON nýtti sér Outcome kosningarkerfið til þess að veita hlutöfum aukið aðgegni að ákvörðuninni með einföldum hætti í stað hefðbundina bréfasendinga.
Um kosninguna
- SPRON fékk afhenta lykla frá Outcome sem var svo úthlutað til þeirra sem kusu að nýta atkvæðsirétt sinn með rafrænum hætti.
- SPRON bauð með auglýsingum á heimasíðu sinni og með annarri upplýsingagjöf upp á þennan kost í nýtingu atkvæða
- SPRON fékk niðurstöður atkvæðagreiðslunnar afhentar að henni lokinni
- Niðurstöður voru uppreiknaðar m.t.t. atkvæðamagns þeirra sem tóku þátt og þær upplýsingar nýttar í endanlegan útreikning niðurstaðna á hluthafafundinum sjálfum.
- Í atkvæðagreiðslum sem þessum er nýtt sérstök útgáfa af Outcome kosningahugbúnaði þar sem rekjanleiki er til staðar og hægt er að setja inn margföldunarstuðla til samræmis við atkvæðavægi hvers og eins kjósanda.
- Outcome hugbúnaður starfar eftir ströngum gæðastöðlum og fyllsta trúnaðar og öryggis er gætt í meðferð mála af þessu tagi.
Niðurstaða kosningarinnar
- Tillagan um fyrirhugaðan samruna SPRON og Kaupþings var samþykkt með 78,78% atkvæða.
- Samruninn er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og háður því að samkeppnisyfirvöld ógildi hann ekki eða setji honum skilyrði sem stjórnir félaganna telja óviðunandi eða leiði til þess að óhjákvæmilegt sé að leggja ákvörðun um samrunann að nýju fyrir hluthafafund í SPRON.
- Samþykkis lánveitenda vegna samrunans hefur þegar verið aflað.
Vörur
Umsagnir
„Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys"
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands
Leit





