Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Kannanir fyrir Actavis í 18 löndum

Outcome hugbúnaður hefur síðastliðin ár séð um verkstýringu fyrir samræmda kannanagerð í starfstöðvum Actavis um allan heim. Nú í vor var skrefið tekið lengra og var öll framkvæmd í höndum starfsmanna Outcome. Um er að ræða framkvæmd og umsýslu rafrænna spurningakannana í 24 starfstöðvum Actavis í 18 löndum. Umrædd könnun er starfmannakönnun sem sett var upp á 10 tungumálum.

Í metnaðarfullu starfi sínu leggur Actavis áherslu á mannauð fyrirtækisins og það ekki bara í orði, heldur einnig á borði. Í þessum könnunum var metinn skilningur og afstaða starfsfólks til stefnu og gilda fyrirtækisins.  Hlutverk Outcome var að setja upp kannanir á mismunandi tungumálum sem sendar voru til starfsfólks í starfsstöðvum Actavis víða um heim.  Í úrvinnslunni voru bæði unnar greiningar fyrir hverja starfsstöð en einnig var heildarniðurstöðum skilað til Actavis. Flóknasti þáttur verkefnisins snéri að uppsetningu kannana á 10 ólíkum tungumálum eins og t.d. rússnesku og tyrknesku þannig að tryggt yrði að fullt samræmi væri á milli lista á mismunandi tungumálum. 

Verkið stóð yfir í einn mánuð og var samvinna starfsmanna Outcome og Actavis til fyrirmyndar.


Vörur

Umsagnir

„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"

Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini