Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Outcome gerir könnun fyrir Háskólann í Reykjavík

HR-ingum gengur vel að fá vinnu. Þetta kemur fram í Alumni-könnun sem skólinn lét Outcome nýverið gera meðal útskrifaðra HR-inga. Könnunin var send til þeirra sem útskrifast hafa frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 1999, Tækniháskóla Íslands (THÍ), Tækniskóla Íslands (TÍ) og Viðskiptaháskólanum í Reykjavík (VHR). Könnunin var framkvæmd með Outcome kannanakerfinu og gerð í gegnum tölvupóst dagana 21. apríl til 10. maí 2010.

Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að um 95% HR-inga voru þegar komin í vinnu eða fengu vinnu á innan við fjórum mánuðum frá útskrift úr Háskólanum í Reykjavík en um 1,5% hefur ekki tekist að finna vinnu. Enn fremur kemur fram að um 90% HR-inga voru þegar komin í vinnu eða fengu vinnu á innan við tveimur mánuðum frá útskrift.

Í könnuninni var spurt út í ýmsa aðra þætti, svo sem hag HR-inga á vinnumarkaði. Þar kom fram að um 24% útskrifaðra HR-inga á vinnumarkaði starfa sem stjórnendur með mannaforráð og um 61% sem sérfræðingar. Þá kemur fram að um 16% útskrifaðra nemenda hafi stofnað eða hafi átt þátt í stofnun nýs fyrirtækis, annað hvort meðan á námi stóð eða eftir að því lauk. Ekki er talin með stofnun eignarhaldsfélaga utan um minniháttar sjálfstæða atvinnustarfsemi.

Þegar spurt var hvers vegna HR, (áður THÍ, TÍ og VHR) hefðu orðið fyrir valinu, en hægt var að merkja við fleiri en einn möguleika, nefndu flestir atvinnumöguleika , gæði kennslu , persónulegt viðmót og aðstöðu.

Tæplega 41% þeirra sem brautskráðust á umræddu tímabili svöruðu könnuninni eða alls 1.429 sem verður að teljast mjög góður árangur þar sem langt er síðan að stór hluti hópsins útskrifaðist.

HR- stór

Sjá nánar um kannanakerfið hér.


Vörur

Umsagnir

„Greiðvirk og frábær þjónusta"

Elísabet Hjaltadóttir
Actavis Group hf


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit