Beint á leiðarkerfi vefsins

Kannanir - Verkefni

Álag á vinnustað eykst - laun lækka eða standa í stað

Kjarakönnun Bandalag háskólamanna (BHM) var framkvæmd á dögunum annað árið í röð af starfsmönnum Outcome með Outcome kannanakerfinu. Könnuninni var ætlað að afla upplýsinga um kjör háskólamanna á vinnumarkaði og spurt var um atriði sem lúta m.a. að reikniforsendum barna- og vaxtabóta, auk þess sem spurt er um breytta hagi af völdum efnahagsþrenginga.

Bandalag háskólamanna tekur um þessar mundir þátt í samráði aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um stefnumótun í efnahags- og kjaramálum. Könnun af þessu tagi er liður í undirbúningi fyrir stefnumótun félagsins. Starfsmenn Outcome sáu um alla framkvæmd og greiningu niðurstaðna við lok könnunar. Greina þurfti skulda- og eignastöðu félagsmanna í tengslum við laun og fjölskyldustærð til þess að nálgast upphæðir barna- og vaxabóta þessa hóps. Með þessum upplýsingum ásamt samanburðartölum úr könnun liðins ári geta starfsmenn BHM dregið upp nokkuð skýra mynd af stöðu mála hjá sínum félagsmönnum og nýtt sem grunni í stefnumótunarvinnunni.

BHM hefur nú lokið greiningu sinni á niðustöðum könnunarinnar og birt það markverðasta að þeirra mati á heimasíðu sinni www.bhm.is. Það helsta sem þar er tekið fram er að um leið og álag á vinnustað hafi aukist ár frá ári, hafa heildartekjur ríflega 70% svarenda í kjarakönnun BHM lækkað eða staðið í stað frá síðasta ári.

Með öðrum orðum; félagsmenn BHM leggja meira á sig og bera á sama tíma minna úr býtum.

BHM - fréttamynd


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi