Kannanir - Verkefni
Ríkisendurskoðun nýtir Outcome kannanakerfið
Á dögunum framkvæmdi Ríkisendurskoðun rafræna könnun á meðal forstöðumanna ríkisstofnana og Outcome kannankerfið var nýtt við framkvæmdina.
Framkvæmd könnunarinnar var með hefðbundnu sniði í kannanaútsendingum Outcome hugbúnaðar. Verkkaupi leggur til tillögur að spurningalista sem er svo aðlagaður og mótaður í samráði við hann. Öll framkvæmd var svo í höndum starfsmanna Outcome hugbúnaðar, en könnunin var send á netfangalista sem Ríkisendurskoðun lagði til. Viðtakendur póstsins voru svo beðnir um að taka þátt með því að smella á þar til gerðan tengil sem vísaði inn á könnunina. Í tvígang voru svo sendar út ítrekanir, en aðeins til þeirra sem ekki höfðu þegar svarað könnuninni. Að endingu var unnin skýrsla með niðurstöðum fyrir Ríkisendurskoðun.

Vörur
Umsagnir
„Góð og lipur þjónusta á sanngjörnu verði"
Margrét Sveinbjörnsdóttir,
AP almannatengsl





