Beint á leiðarkerfi vefsins

Veflausnir - Verkefni

Rafræn neytendahjálp með Leiðakerfi neytenda

Á vordögum opnaði Gísli Tryggvason, Talsmaður neytenda, ásamt viðskiptaráðherra Björgvini G. Sigurðssyni nýtt vefkerfi sem bætir upplýsingagjöf um neytendarétt.  Um er að ræða kerfi sem leiðir notandann að niðurstöðu um sinn rétt og hjálpar til við að ná fram úrlausn.

Leiðakerfi neytenda er sameiginleg vefgátt fyrir allar tegundir neytendamála, óháð því hvaða stofnun eða samtök fara með málaflokkinn.

Meðal þeirra lausna sem eru í notkun á vefnum eru:

  • Sértæk efnisorðaskrá, með vísanir inn í vefinn eftir málefnum.
  • Sértæk orðskýringaskrá, sem útskýrir ýmis orð og hugtök sem notuð eru í efni vefsins.  Orðskýringarnar eru einnig notaðar innan vefsins og er í þeim tilfellum farið með músarbendil yfir orðið til að fá nánari skýringu á því.
  • Mín erindi.  Sértækt notendakerfi sem heldur utan um heimsóknir vefnotandans, sem og þau erindi sem hann hefur unnið með.  Notandi getur valið um hvort hann auðkenni sig eður ei.
  • Gagnvirkt smellikerfi sem leiðir vefnotandann að niðurstöðu um hans rétt og hjálpar til við að ná fram úrlausn, sem getur verið breytileg eftir því hvað vefnotandinn valdi í hverju skrefi.
  • Rafrænt eyðublað sem unnið er upp úr þeim gögnum sem verða til þegar vefnotandi notar smellikerfið.  Vefnotandi getur svo valið um að senda eyðublaðið rafrænt á viðkomandi aðila, prentað það út, vistað það sem Word-skjal eða valið að vinna með það seinna, með því að sækja það í gegnum Mín erindi.
  • Fjölmörg rafræn eyðublöð fyrir úrskurðarnefndir, þar sem vefnotandi getur fyllt út upplýsingar um sitt erindi, hafi hann kosið að skjóta máli sínu til úrskurðanefnda.
  • Fjölmörg rafræn eyðublöð fyrir sáttaumleitun sýslumanns, þar sem vefnotandi getur fyllt út upplýsingar um sitt erindi, hafi hann kosið að skjóta máli sínu til einhvers sýslumannsembættanna.

Þarfagreining verkefnisins var í höndum Anza.  Frekari ítrun þarfagreiningar, hönnun og hugmyndavinna einstakra kerfisþátta var í höndum starfsmanna Outcome sem og verkefnisstjóra verkefnisins, Liselotte Widing.

Vefurinn var hannaður og forritaður af Outcome hugbúnaði, keyrir á Outcome vefstjóra og er hýstur hjá Outcome hugbúnaði.

Leiðakerfi neytenda

www.neytandi.is


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit