Beint á leiðarkerfi vefsins

Veflausnir - Verkefni

Nýr vefur Atvinnumála kvenna

Á hverju ári býður Vinnumálastofnun fram styrki til átaks í atvinnumálum kvenna. Fyrir árið 2008 munu Félagsmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun veita 50 milljónum í styrki sem renna til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir. Um er að ræða mun hærri upphæð en áður hafði verið sett í átak af þessu tagi og því settur aukinn kraftur í kynningu og öll umgjörð verkefnisins því mun umfangsmeiri en áður. 

Vægi vefsíðu sem sett var upp í tengslum við verkefnið var töluvert. Í því samhengi má segja frá því að

  • Vefsíðunni er ætlað að kynna styrkina og þær reglur sem gilda um úthlutun þeirra.
  • Á vefsíðunni er fullkomið rafrænt form þar sem hægt er að skrá styrkumsóknir með fylgigögnum. 
  • Vefnum er ætlað að veita frumkvöðlum stuðning með fræðslu og upplýsingum.
  • Loks er horft til þess að skapa fjölþætt netsamfélag sem konur geta stutt við hvor aðra með margvíslegum hætti í þeim verkefnum sem tekist er á við hverju sinni.

Meðal þeirra lausna sem eru í notkun á vefnum eru:

  • Fullkomið rafrænt form, þar sem hægt er að skrá styrkumsóknir með fylgigögnum.  Áður hafði vefur Vinnumálastofnunar innihaldið svipað form, sem einnig var forritað af starfsmönnum Outcome hugbúnaðar.
  • Spurt og svarað, þar sem notandi getur tekið virkan þátt í spurningaferlinu, með nýstárlegum hætti.
  • Hjálparkerfi í umsóknarforminu, þar sem hægt er að fara með músarbendil yfir þar til gert hjálparsvæði og fá þannig upp lýsingu á viðkomandi hluta umsóknarformsins.

Umrætt verkefni er þó enn ekki komið á leiðarenda, því fyrirhugaðar eru viðfangsmiklar viðbætur á vefsíðunni, þar sem skapað verður nýtt samfélag kvenna, m.a. ætlað þeim konum sem hafa sótt um styrki til atvinnumála kvenna.  Hver kona mun þar eignast sitt svæði á vefsíðunni og hefur möguleika á að skoða fyrri styrki sína rafrænt, ásamt því að vera í sambandi við aðrar konur innan samfélagsins.

Hönnun vefsins var í höndum Orra Guðjónssonar og starfsmenn Outcome hugbúnaðar sáu um alla forritun og uppsetningu. Vefurinn keyrir á Outcome vefstjóra og er hýstur hjá Outcome hugbúnaði.

Atvinnumál kvenna

www.atvinnumalkvenna.is


Vörur

Umsagnir

„Tímaáætlanir standast og starfsmenn veita gagnlegar ábendingar"

Hag og upplýsingasvið
Sambands íslenskra sveitarfélaga


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit