Beint á leiðarkerfi vefsins

Veflausnir - Verkefni

Eures - Evrópsk vinnumiðlun

Vefur Eures inniheldur mikið af upplýsingum sem gagnast þeim sem hug hafa á að leita sér að vinnu á evrópska efnahagssvæðinu eða vilja fá starfsfólk erlendis frá. Um er að ræða fjölþættar upplýsingar um það hvernig fólk skuli bera sig að við atvinnuleit og að hverju þurfi að huga þegar leitað er út fyrir landssteinana eftir starfi.

Einnig má finna á vefnum upplýsingar fyrir atvinnurekendur sem vilja fá til sín starfsfólk frá Evrópu, en ein af meginreglum EES er frjálst flæði starfsfólks á milli þeirra ríkja sem aðild eiga að samningnum.   Sömuleiðis má finna upplýsingar fyrir fólk af erlendu bergi brotnu, sem áhuga hafa á að starfa á Íslandi.

Loks er að finna á vefnum töluvert af atvinnutilboðum sem berast frá Evrópu til Íslands í hverri viku. Þar má finna marga spennandi kosti, hvort sem horft er til skemmri eða lengri dvalar á erlendri grund.

Meðal þeirra lausna sem eru í notkun á vefnum eru:

  • Vefur rekinn á tveimur tungumálum
  • Laus störf á Íslandi sem og erlendis - birt eftir löndum
  • Mánaðarlegar upplýsingar um atvinnuleysi á Íslandi sóttar á vef Vinnumálastofnunar
  • Sértæk birting á upplýsingum um önnur lönd
  • Sértæk notkun á Spurt og svarað-kerfi - birt eftir flokkum og spurningum
  • Greinar sóttar sjálfvirkt á vefgátt Eures í Evrópu

Hönnun vefsins var í höndum Arngríms Arnarsonar og forritaður af Outcome hugbúnaði. Vefurinn keyrir á Outcome Vefstjóra og er hýstur hjá Outcome hugbúnaði.

Eures - Evrópsk vinnumiðlun

www.eures.is


Vörur

Umsagnir

„Fagmennska fyrsta flokks!"

Árni Steinar Stefánsson
Eures


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi