Veflausnir - Verkefni
SART opna nýjan vef hjá Outcome
Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði (SART) opna nýjan vef hjá Outcome hugbúnaði. Um er að ræða endurskipulagningu vefsins og breytingu á útliti. Vefurinn nýtir nýjustu útgáfu Outcome vefstjórans sem eykur og bætir virkni hans.
Líkt og segir á nýrri heimasíðu samtakanna, þá er stærsti hluti félagsmanna rafverktakar, en það eru rafvirkjameistarar og rafeindavirkjameistarar sem reka sín eigin fyrirtæki, eru með rafiðnaðarmenn í vinnu og bera faglega ábyrgð á öllum verkefnum fyrirtækisins. Stefna samtakanna er að veita félagsmönnum sínum margvíslega þjónustu og fyrirgreiðslu um hvað eina er snýr að atvinnurekstri og að vera málsvari þeirra gagnvart almenningi og opinberum aðilum. Ný heimasíða kemur til með að styðja vel við starf samtakanna.

Vörur
Umsagnir
„Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys"
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands





