Veflausnir - Verkefni
Lífeyrissjóður bankamanna opnar nýjan vef
Nýverið tók Outcome að sér að endurhanna og uppfæra vef Lífeyrissjóð bankamanna. Um er að ræða endurnýjun á eldri vef en Lífeyrissjóður bankamanna hefur verið góður viðskiptavinur Outcome um árabil. Ákveðið var að létta yfirbragð vefsins og endurskoða efnisframsetningu og auka þar með notagildi vefsins fyrir sjóðsfélaga.
Lífeyrissjóður bankamanna er einn elsti lífeyristryggingarsjóður landsmanna, stofnaður árið 1919. Eins og nafnið gefur glöggt til kynna, þá er þetta lífeyrissjóður fyrir starfsmenn banka- og fjármálafyrirtækja. Starfsemi hans hefur vaxið mikið síðustu ár með stækkun þessa geira í efnahagslífinu. Með fjölgun sjóðsfélaga kemur meiri krafa um aukna þjónustu og því er nýr vefur kærkomin aukning í þá átt.

Vörur
Umsagnir
„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf





