Veflausnir - Verkefni
Lögfræðingafélagið opnar vefverslun
Lögfræðingafélag Íslands hefur opnað vefverslun á heimasíðu sinni. Um er að ræða viðbót við núverandi vef Lögfræðingafélagsins en útbúin var sérútfærsla á Outcome vefverslunarkerfinu.
Á heimasíðu Lögfræðingafélagsins má komast á vefverslun félagsins en þar er hægt að kaupa rafrænan aðgang að Tímariti lögfræðinga frá árinu 2005. Unnt er að kaupa einstök hefti tímaritsins, árganga og gerast áskrifandi.
Hlutverk Lögfræðingafélags Íslands er að efla samheldni með íslenskum lögfræðingum, gæta hagsmuna lögfræðingastéttarinnar í hvívetna, stuðla að vísindalegri umræðu og rannsóknum í lögfræði og taka þátt í samvinnu háskólamenntaðra manna á Íslandi. Outcome hefur átt fjölþætt og farsælt samstarf við félög lögfræðinga um töluvert skeið.

Vörur
Umsagnir
„Þjónusta sem Outcome veitir er framúrskarandi"
Heiðar Kristinsson
Sölu- og markaðsstjóri, Tölvumiðlun hf
Leit





