Veflausnir - Verkefni
Outcome opnar vef Bankasýslu ríkisins
Bankasýsla ríkisins er ný stofnun sem tók til starfa í janúar á þessu ári. Bankasýslan leitaði til Outcome hugbúnaðar þegar kom að uppsetningu á vef stofnunarinnar. Markmiðið með vefnum er í senn að upplýsa um störf Bankasýslunnar og skapa möguleika til að taka við rafrænum umsóknum í störf sem auglýst eru á þeirra vegum í fjármálastofnunum. Vefurinn hefur þegar sannað gildi sitt á þessu sviði og almenn ánægja er með útkomuna.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum eins og Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum. Starfseminni er ætlað að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings.
Starfsmenn settu vefinn upp á Outcome Vefstjóranum en hönnun var í höndum Arngríms Arnarsonar.

Hægt er að sjá dæmi um vefi hjá Outcome hér.
Vörur
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK
Leit





