Veflausnir - Verkefni
Árnason Faktor opnar vef hjá Outcome
Nýverið opnaði Árnason Faktor nýjan vef fyrirtækisins hjá Outcome hugbúnaði, en fyrirtækið er stærsta lögfræðifyrirtæki á sviði einkaleyfa og hugverka á Íslandi. Vefurinn dregur í senn fram viðfangsefni stofunnar svo og þá sérfræðinga sem þar starfa og styrkir þannig jákvæða og sterka ímynd fyrirtækisins.
Vefurinn er bæði á íslensku og ensku enda einkaleyfi og hugverkaréttur í eðli sínu alþjóðleg mál. Er vefnum ætlað að styrkja ímynd fyrirtækisins sem leiðandi á þessu sviði á Íslandi.
Hugverkaréttur og einkaleyfi eru í eðli sínu alþjóðleg viðfangsefni og því starfar Árnason Faktor í alþjóðlegu umhverfi. Fyrirtækið hefur þannig byggt upp samband við sérfræðinga á þessu sviði víðs vegar um heiminn. Enskur vefur var því settur upp samhliða þeim íslenska, en hann styður við þetta alþjóðlega tengslanet. Vefurinn var settur upp á Outcome Vefstjórann en hönnunin var í höndum Orra Guðjónssonar.

Hægt er að sjá dæmi um fleiri vefi hjá Outcome hér.
Vörur
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris
Leit





