Veflausnir - Verkefni
1000 störf og 25.000 starfsumsóknir
Í maímánuði auglýsti Vinnumálastofnun1000 sumarstörf hjá ríki og sveitarfélögum til umsóknar. Um var að ræða aðgerðir sem opinberir aðilar gripu til vegna yfirvofandi atvinnuleysis skólafólks nú í sumar. Umsýsla og vinnsluferill umræddra umsókna var allur rafrænn og unninn í gegnum vefviðmót og gagnagrunna sem starfsmenn Outcome settu upp.
Ferillinn hófst á því að koma auglýstum störfum á framfæri með nánari upplýsingum um hvert starf. Umsækjendur skráðu sig á netinu og fengu við skráningu lykilorð sem gerði þeim mögulegt að sækja um störf og fá aðgang að " sínum síðum " þar sem yfirlit yfir þeirra umsóknir var að finna. Hverju starfi tengdist svo umsóknarferill þar sem umsækjendur gátu sótt um störf rafrænt og skilað inn fjölbreyttum upplýsingum um sig með hverri umsókn. Eftir að umsóknarfrestir runnu út fengu stofnanir og sveitarfélög aðgang að rafrænum yfirlitum sem sýndu þá umsækjendur sem sóttu um störf hjá viðkomandi aðilum. Þar var hægt að fara yfir umsóknirnar rafrænt og velja úr þá sem ræða skildi við vegna tiltekinna starfa.
Áhugi á þessum sumarstörfum var mikill. Samtals bárust um 25.000 umsóknir í þessi 1000 störf. Sótt var um öll auglýst störf og 270 manns sóttu um það starf sem var vinsælast.
Frá því að farið var af stað með umrætt verkefni og þar til fyrstu störf voru auglýst liðu aðeins fáar vikur og því var unnið í kappi við tímann. Þegar upp er staðið er það almennt mat að vel hafi tekist til og væntanlega er þetta upphafið að frekari uppbyggingu rafrænna ferla á þessu sviði, en fullyrða má að hagkvæmni þeirra sé ótvíræð í verkefnum sem þessum.

Vörur
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris





