Veflausnir - Verkefni
Talið niður í Jökulsárhlaup
Nýlega var opnaður nýr vefur Jökulsárhlaups, en það hefur verið haldið árlega síðan 2004 og fer fjöldi þátttakenda vaxandi með hverju árinu. Hlaupið er einstakt þar sem það fer fram í stórkostlegu umhverfi Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði.
Hönnun vefsins tekur mið af umhverfi hlaupsins þannig að hamraveggir sem eiga rætur í Jökulsárgljúfrum eru grunnur í vefnum sem er í senn aðgengilegur og upplýsandi. Á forsíðu vefsins er talið niður til hlaupadags sem er 24. júli næstkomandi. Hönnun vefsins er til fyrirmyndar en hann er hannaður af Arngrími Arnarsyni. Vefurinn var settur upp á Outome Vefstjórann af starfsmönnum Outcome hugbúnaðar.

Leit





