Veflausnir - Verkefni
Endurvinnslan - Skýr skilaboð um þjónustu
Vefur Endurvinnslunnar hf. hefur verið endurnýjaður. Nýr vefur er sérlega skýr og var sérstaklega hannaður með það í huga að koma lykilupplýsingum á framfæri. Vefurinn er því einfaldur en á sama tíma sérlega skýr og aðgengilegur. Öllum upplýsingum er haganlega fyrir komið og engum lykilspurningum um opnunartíma, skil og verð ósvarað.
Arngrímur Arnarson vefhönnuður hjá Blokkinni sá um útlitshönnun og skipulag vefsins. Það er ekki alltaf einfalt að hanna einfaldan vef, en hér tókst sérlega vel til. Uppsetning og frágangur af hálfu Outcome hugbúnaðar var í höndum Jóns Ívars Hermannssonar tölvunarfræðings og vefurinn byggir á Outcome Vefstjóranum.

Leit





