Veflausnir - Verkefni
Nature Explorer - Ævintýralegar Íslandsferðir
Allt frá stofnun hefur ferðaþjónustufyrirtækið Nature Explorer nýtt upplýsingatæknina til að koma þjónustu fyrirtækisins á framfæri og einnig til að taka við ferðabókunum. Nú hefur vefur félagsins verið endurnýjaður og þá sérstaklega m.t.t. þess að koma ferðum betur á framfæri og auðvelda aðgengi að upplýsingum.
Fjölþætt þjónusta er í boði og lykilatriði að framsetning sé skýr og hjálpi viðskiptavinum í upplýsingaleit. Einn lykilþáttur enn snýr að því að efni vefsins sé leitarvélum vel læsilegt. Vefurinn er byggður á Outcome Vefstjóranum og þar er sérstaklega hugað að efnisskipan vefsins m.t.t. þess hvernig leitarvélar safna upplýsingum og þannig styður kerfið við markaðssetningu vefsins. Starfsmenn Outcome hugbúnaðar sáu um uppsetningu vefsins en hönnun og upplýsingaskipan var í höndum starfsmanna Nature Explorer.

Vörur
Umsagnir
„Outcome stenst okkar kröfur um nákvæmni, skipulag, áreiðanleika og vandvirkni"
Ásta Snorradóttir
Vinnueftirlitinu





