Beint á leiðarkerfi vefsins

Veflausnir - Verkefni

Svanni eflir atvinnulíf á Íslandi

Svanni - Lánatryggingasjóður kvenna opnaði fyrir skömmu vefinn www.svanni.is en vefurinn inniheldur hvortveggja margvíslegar upplýsingar um stuðningsumhverfi við frumkvöðlastarf og einnig er á vefnum  að finna rafrænt umsóknarform þar sem hægt er að sækja um lánatryggingu til sjóðsins. Hér er ekki eingöngu um rafrænt umsóknarform að ræða heldur heildarúrvinnsluferil  umsókna þannig að umsagnar- og matsaðilar geta unnið sína vinnu í gegnum vefinn með einföldum hætti og skilað sínu mati þar.

Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum.Verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja eignir sínar en karlar og hefur það oft staðið verkefnum kvenna fyrir þrifum.
Sjóðurinn, sem hefur hlotið nafnið Svanni,  er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er verkefnið til fjögurra ára og lýkur þann 31.desember 2014.

Útlitshönnun var í höndum Orra Svavars Guðjónssonar. Uppsetning vefs og sérforritun var í höndum starfsmanna Outcome hugbúnaðar.

mynd-med-frett-stor

 


Vörur

Umsagnir

„Greiðvirk og frábær þjónusta"

Elísabet Hjaltadóttir
Actavis Group hf


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome fréttabréfakerfi - betri samskipti við viðskiptavini