Beint á leiðarkerfi vefsins

Hvernig á að skrifa góð fréttabréf

Til þess að hanna og skrifa árangursríkt fréttabréf eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga.

Vandaður og stuttur texti

Árangursrík fréttabréf, eru þau sem veita bestu upplýsingarnar og/eða þau sem hvetja einstaklinga til jákvæðra viðbragða gagnvart þínum boðskap.  Þessi fréttabréf eru skýr og markviss í uppsetningu og innihaldi. Mikilvægt er að vanda málfar og fjalla um þau viðfangsefni sem snerta móttakandann með einhverjum hætti. Með Outcome fréttabréfakerfinu getur þú skoðað hverjir hafa skoðað fréttabréfið og hvaða tenglar vekja helst áhuga þeirra.  Með þessu skapast lærdómur um áhugasvið markhópsins og þegar að frekari útsendingum kemur má byggja á því hvað naut vinsælda í fyrri útsendingum.

Látlaus en falleg hönnun

Hönnun fréttabréfa felur í sér hvortveggja útlitshönnun og uppbyggingu. Gæta þarf þess að hönnunin styðji inntak fréttabréfs. Röng hönnun þvælist fyrir og dregur athygli frá því sem skiptir máli. Meginreglan er sú að textinn og inntakið eiga alltaf að vera auðlæsilegt og notkun myndefnis og auglýsinga styðji við efnið. 

Skilgreina lesendahópinn

Mikilvægt er að átta sig á því hverjir eigi að fá tiltekið fréttabréf. Í stað þess að senda eitt stórt fréttabréf sem höfða á til mjög margra getur verið skynsamlegt að skipta hópnum upp í smærri einingar og senda mismunandi boðskap á mismunandi hópa. Með markvissri póstlistaskráningu er hægt að skipta hópnum upp eftir margvíslegum breytum t.d. aldri, kyni, áhugamáli eða hverju því sem gæti skipt máli. Með smá breytingu á texta og tenglasafni fréttabréfs er hægt að sníða bréfið að áhugasviði hvers hóps og ná þannig betri árangri.

Magn eða gæði

Huga skal sérstaklega að því hverjum send eru fréttabréf eða markpóstar. Þegar til lengri tíma er litið munu óvandaðar útsendingar til aðila sem fréttabréfið á ekki erindi við skaða þann sem sendir. Bæði verður til slæmt umtal og vilji til viðskipta og samskipta minnkar.  Jafnvel getur viðbragð við óvönduðum sendingum leitt til þess að aðilar eru settir á svarta lista og við það heftast allar þeirra póstsendingar verulega. Tryggja þarf að alltaf sé auðveld leið til afskráningar og að eftir að aðili hefur afskráð sig á ekki að ónáða hann frekar.  Ef rétt er að málum staðið verður til hágæða póstlisti sem getur orðið mjög verðmætur sé honum rétt beitt, þar sem útsendingar leiða til jákvæðrar niðurstöðu og auka hróður sendandans.  


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit