Beint á leiðarkerfi vefsins

Af hverju rafræn fréttabréf

Mikilvægi fréttabréfa

Allir sem stunda viðskipti eða halda úti félagslegum tengslum geta styrkt stöðu sína og náð bættum árangri með góðu og markvissu upplýsingastreymi. Ef þú vilt bæta samband þitt við hópinn sem skiptir þig mestu máli gæti fréttabréf fært þig nær hópnum, styrkt tengslin og leitt til aukinnar jákvæðni í þinn garð. Rafrænt fréttabréf gefur þér færi á þessu með litlum tilkostnaði og miklum hraða.  

Að viðhalda tengslum með því að koma reglulega til skila fréttum eða öðrum skilaboðum áleiðis til viðskiptavina, starfsmanna eða félagsmanna er lykilárangursþáttur í uppbyggingu og viðhaldi sambanda. Hvort sem um er að ræða tengsl á félagslega- eða viðskiptasviðinu eru reglubundin skilaboð / upplýsingastreymi áminning til viðtakandans um tilvist þína og það sem þú stendur fyrir. 

Tæknin í þína þágu 

Á fáum árum hefur tölvupóstur orðið eitt helsta samskiptatæki hins Vestræna heims og Íslendingar standa þar framarlega í flokki. Þessi þróun skapar tækifæri til að nýta tölvupóstinn til fjöldasendinga og nú er hægt að koma skilaboðum á framfæri með minni tilkostnaði og meiri hraða en nokkru sinni áður.  

Árangur næst ekki eingöngu með því að senda út tölvupósta. Það er lykilatriði að umgangast móttakandann af tilhlýðilegri virðingu. Sýna metnað í efnisvali og framsetningu og ganga frá umgjörð og birtingu þannig að áhugi vakni og fréttabréfið verði því frekar lesið.

Vanda skal til verka 

Falleg hönnun og öflugt kerfi við hönnun og útsendingu fréttabréfs geta skorið úr um hvort eitt fréttabréf er lesið fram yfir annað. Outcome fréttabréfakerfið er íslensk hönnun sérsniðin að íslenskum aðstæðum. Markmiðið er að með lágmarks tölvukunnáttu geti notandinn á skömmum tíma sett upp frambærilegt fréttabréf og sent það frá sér.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið